Fyrir þá sem eru að læra tungumál er margt sem þarf að glíma við. Fyrst er það að kunna að lesa og bera fram helstu hljóð í viðkomandi tungumáli svo og að læra helstu kveðjur og að mynda algengar setningar. Þegar lengra er komið verður námið ef til vill einhæfara en þá er þetta oft spursmál um að öðlast nægan orðaforða. Fyrir evrópsk tungumál getur þetta verið auðveldara því að oft kemur sameiginlegur stofn til hjálpar við að tengja orð sem maður lærir við orð sem maður þekkir fyrir. Nú og því fleiri tungumál sem maður kann, s.s. ensku og spænsku, því auðveldara verður að læra önnur skyld mál.
Fyrir þá sem eru að læra asísk tungumál er málið nokkuð flóknara. Þegar kemur að málum eins og kínversku og japönsku þá er það að læra skrifmál og talmál enginn hægðarleikur. Fyrir utan að læra nýtt hljóðkerfi eða tóna þarf einnig að læra þúsundir tákna og orða sem eiga lítið skylt við okkar daglegu reynslu. Mikið af þessu er einfaldlega utanbókarlærdómur, eitthvað sem þarf að festast í minni svo við getum treyst á að þekkja viðkomandi tákn eða orð þegar við loks rekumst á það.
Höfundur hélt sjálfur lengi út glósubók þar sem í voru krotuð orð sem hann rakst á dags daglega ásamt merkingum þeirra. Síðan var gjarnan gluggað í þessa bók við og við til að fullvissa sig um að maður kynni nú orðin. En nokkrum glósubókum seinna fór hann að taka eftir því að hann var farinn að glósa sum orð aftur. Það að muna orð er greinilega flóknara en að lesa yfir glósubókina.
Höfundur hefur undanfarið ár unnið við vefsíðu nokkra sem tekur akkúrat á þessum vanda og er manni almennt innan handar við allskonar tungumála lærdóm. Vefsíða þessi er iKnow.co.jp og er í stuttu máli lærdómsvefur með félagsívafi sem er öllum opinn að kostnaðarlausu. Síðan var upprunulega gerð til að hjálpa japönsku mælandi að læra ensku en hefur smátt og smátt verið að bæta við efni fyrir enskumælandi sem vilja læra japönsku og nú nýlega kínversku. Einnig hafa verið gerð tól til að gera notendum kleift að setja inn sitt eigið efni á hvaða tungumáli sem er. Helsti styrkleiki vefsvæðisins og að það er gert með það að megin markmiði að hjálpa fólki að læra og muna staðreynda-bundna þekkingu (e. declarative knowledge). Fylgst er með hvenær viðkomandi er líklegastur til að gleyma hverri staðreynd fyrir sig og skjóta henni þá upp á yfirborðið til að fara yfir.
Til að byrja með langar mig að kynna þessi tól, hvernig maður setur saman eigið efni til að læra og að lokum hvernig maður notar forrit þau sem boðið er upp á til að læra efnið.
Skrapp á útihátíð sem var haldinn á tjaldstæði nokkru í Gunma sýslu hérna í Japan. Fyrsta almennlega partýið í rúmlega mánuð, enda hef ég tekið því rólega eftir viðburðaríkt sumar. Líklega voru um 2000 manns á svæðinu, flestir í tjöldum en vinnufélagi rekur allt apparatið og gat ég því komið mér fyrir í kofa nokkrum, þó að það sjái á mér eftir að hafa sofið á gólfinu þar. Það er svona þegar maður sleppir dýnu og lætur bara ör-þunnan svefnpokann vera milli skrokks og viðargólfs. Tónlist var spiluð frá því fyrir miðnætti og fram yfir hádegi daginn eftir og var dansað og djammað undir tunglbjörtum himni. Fyrsta almennilega útilegan mín hérna í Japan og verð ég að segja að ágætlega tókst til. Fleiri myndir frá hátíðinni má finna í mynda albúminu.
Nú einnig er vert að minnast á að þar voru líka komnar upp myndir frá Phuket ferðinni og svo heimsókn minni til Nokogiri-yama.
Einnig hefur verið nóg að gera í vinnunni. Frá og með síðstu viku var opnað fyrir nýtt efni á vefnum okkar sem hjálpar ensku mælandi að læra japönsku og muna japanskan orðaforða. Ef einhver er forvitinn og vill leggja nokkur japönsk orð á minnið þá er um að gera að kíkja á japönsku-ensku kúrsanna hjá iKnow.co.jp. Fljótlega mun síðan bætast við kúrsar sem kenna japanska stafróið en þangað til má velja rómanska stafróið sem valkost í iKnow forritinu sem er keyrt upp frá síðu hvers kúrs fyrir sig. Hér fyrir neðan má glugga nokkur orð úr kúrs sem ég var að prufa.
Að lokum þá er það í fréttum að hef ég fjárfest í flugmiða heim um Jólin og vonast til að koma svo snemma sem 18. des og vera fram á nýja árið að venju. Þá er líklega um að gera að fara versla jólagjafir, það er alveg sama hvað ég byrja snemma á því, ég lendi alltaf í vandræðum með nokkrar sem eru geymdar fram á síðustu stundu.
Ég er að fatta að það er orðið talsvert síðan ég krotaði eitthvað hérna síðast. Góðir þrír mánuðir að minnsta kosti. Hvað hef ég nú haft fyrir stafni? Ég eyddi apríl aðallega við vinnu og í íbúðarleit. Hélt ég væri komin með eina góða íbúð, splunkuný og flott en hætti við á síðustu stundu. Fannst verðið alltof hátt og var ekki alveg 100% með hverfið. Síðan kom það í ljós að vinir mínir Jóhann og Eggert ætluðu að koma í heimsókn þannig að ég ákvað á endanum að fresta allri íbúðarleit þangað til í ágúst enda er þá meira framboð heldur en nú.
Í maí skrapp ég í fallhlífar svifflug (e. paragliding) með nokkrum vinnufélögum, afspyrnuvel tóks til og fór ég rúmlega 8 ferðir sem þykir í meira lagi þó að hver ferð sé frekar stutt enda vorum við algjörir byrjendur. Myndir frá því hér.
Nú kom Jóhann í lok maí og dvaldi hér í tvær vikur áður en við skruppum saman til Phuket eyjar í Tælandi. Sú ferð gekk mjög vel, veðrið var ágætt þrátt fyrir að þetta hafi verið yfir regntímann. Einu sinni lentu við í hellidembu og það á þessum mótórhjólum sem við höfðum leigt okkur. Það var áhugaverð reynsla að keyra um á 60 - 70 km hraða með stærðar regndropa hamrandi á bringunni. Að lokum var ég svo gegnsósa að það reyndist ekki þurr blettur á skrokknum. Í betra veðri var keyrt um alla eyjuna og skoðað. Hvert kvöld beið manni dýrindis máltíð með Tælensku karrí, humrum og risarækjum og það allt á innan við 2000 kr íslenskar á haus, og það með nokkrum bjórum. Einnig var skroppið til Phi Phi eyjar sem er á milli Phukets og meginlandsins. Farið var á báti og stoppað til að synda á gullfallegum ströndum, snorkela í sjónum, og stinga sér fram af bátnum… allt í allt þræl gaman.
Eftir að heima var komið hef ég verið að reyna að ná andanum eftir allan hamaganginn, vinnan tók náttúrulega við á fullu og nóg að gera. Eggert kemur síðan í heimsókn um næstu helgi og þá verður sko ekkert minna að gera. Bæti fljótlega við myndum frá Phuket (um leið og ég kemst í gegnum þær, ekkert lítil vinna að fara í gegnum þessar myndir) þannig að áhugasamir ættu að kíkja aftur fljótlega. Einnig bætast líklega nokkrar við flickr svæðið áður en ég set þær upp í albúminu.
Þangað til næst, endilega láta í sér heyra í pósti eða á tjattinu.
Vorblómin eru byrjuð að blóma hérna þó að hitarinn minn sé enn í gangi flest öll kvöld.
Nóg er að gera í vinnunni og birtust fréttir frá fyrirtækinu um að hundrað þúsund notendur hefðu verið skráðir á vefinn eftir aðeins rétt 5 mánuði.
Næstu helgi flýg ég norður til Hokkaido í aðra skíðaferð ársins. Fór þá fyrstu í lok febrúar með Tókíó Gæjín félagskap nokkrum og var það bara nokkuð gott þar sem mér tókst að komast niður 1600 m fjallið nær óskaddaður.
Smá mynd hérna í tilefni þess, en eins og rétt svo sjá má er ansi margt um manninn í hlíðum Nagano.
Í þetta sinn fer ég með Áströlskum vini mínum og konu hans og gistum við þar í heimahúsum fjölskyldunar. Ætti að vera gott fjör og ég hlakka mikið til. Annars er íbúðarleit hafinn og kominn tími til að flytja sig nær miðbænum og þá nýja vinnustaðnum. Spurning hvað þetta tekur langan tíma en áætlunin er að finna eitthvað með ágætis rými á skikkanlegu verði og það helst innan 10 Km frá Shibuya. Þetta hljómar hálf ómögulegt en hver veit…
Já, og fékk mér PS3 til að spila Blu-Ray diska. Nokkrir svoleiðis á leiðinni en meira um það á ensku síðunni.
Það gerist ekki oft, en það snjóaði í nótt og aldrei þessu vant var nágrennið mitt hvítt á að líta.
Eftir smá skemmtun á hverfiskránni síðast liðinn föstudag lagðist ég í leti helgi eins og hún gerist best.
Gos, pizza og vidéó. Horfði á “The Science of Sleep” sem ég hafði keypt fyrir 500 kall á Heathrow og þrátt fyrir að vera spes mynd með ágætis karakter um dreng sem á erfitt með að gera greinarmun á draumi og veruleika þá var hún á heildina litið gífurlega leiðinleg. Mæli ekki með henni.
Mikið er búið að vera gera í vikunni, vinnudagarnir nokkuð óvenjulegir frá 10.30 til að verða tíu að kvöldi flesta daga. Vefnum gengur vel og komin yfir 70K notendur með almennt mjög jákvæða umfjöllun. Er að læra helling af nýju dóti um Ruby forritunarmálið og Rails vef þróunar umhverfið, tali nú ekki um gagnagrunna og hvað þarf að gera til að fá SQL fyrirspurnir til að keyra vel. Nú þarf ég bara að fara plana helgarnar betur til að gera eitthvað skemmtileg. Dauðlangar á skíði en svo virðist sem allir séu of uppteknir til að stelast í burtu. Um næstu helgi er kynning á viðbrögðum við jarðskjálfta í boði Sendiráðsins í samvinnu við Íslendinga Félagið og er von á sérfræðingi frá Tokyo borg til að halda fyrirlestur. Líklegast kominn tími til að maður hugsi alvarleg um þennan möguleika.
Man eftir að hafa séð grein um að Daily Show væri á klákanum að fjalla um það að Ísland hefði dregið sig úr Írak. Skissan þeirra var loksins sýnd núna um daginn og er ágætis grín:
Mér er samt spurn hvað var að gerast á þessum blaðamanna fundi, allir eru eitthvað svo súrir á svip. Vissu þeir ekki að þetta væri grín eða fannst þeim þetta bara svona fáránlegt.
Mamma fann þetta gamla póstkort innan um einhverja pappíra. Kortið sýnir Laugardalinn og Laugardalslaugina eins og þau litu út einhverntímann á sjötta áratugnum. Fannst það bæði svo kómískt og sláandi hvað þetta hefur breyst mikið að ég varð að setja þetta upp hérna. En þá fyndnara er að ég man eftir því að Laugardalslaugin leit nákvæmlæga svona út þegar ég var þarna á sundnámskeiði einhverjum 20 árum eftir að myndin er tekin. Hvenær gjörbreyttist þetta svona? ;)
Eftir tiltölulega langa og mjög góða dvöl heima hélt ég aftur austur í morgun. Þrátt fyrir tiltölulega hagstæð skilyrði komst ég ekki í flugið frá London og þarf því að sætta mig við dagsdvöl í London í nótt. Veðrið er frekar grálegt og nokkur rigning þannig að ég sætti mig við að sitja inn á hóteli og lesa bækur eða horfa á vídeó til morguns. Ekki er það bara veðrið heldur er verðið hér jafn sláandi og fyrr, fyrir sömu upphæð og ég eyði hér í að dvelja í litlum skáp undir einhverjum hótelstiga með ónýtu 10” sjónvarpi, skáp sem jafnvel Harry Potter hefði lýst sem “í þrengra lagi”, hefði ég getað dvalið á fínu hóteli í Japan. Jæja, bara sólarhringur í þetta.
Vúhú, komin til London og er á lífi!
Vantar ekki að það sé kalt hérna, en voða svipað og Tokíó grunar mig.
Nú er bara að troða sig fullan af Indverskum mat og sjá hvernig lífið er í þessum bæ um miðjan vetur.
Já og vona að óveðrið heima taki sig ekki upp aftur svo maður fái nú að lenda á klakanum.
Þessi vika og sú síðasta hafa verið ótrúlega annasamar. Vinnudagurinn hefur verið langur og oft frá 10 að morgni til rúmlega 10 að kvöldi. Það er þó búið að vera mjög gaman. Vinnustaðurinn er fullur af orku og mikill hraði. Tækniliðið er samansett af fólki frá ýmsum löndum og gaman að sjá svona annars ólíkan hóp vinna saman að því að hamra út þennan vef sem fyrirtækið er að reyna að koma í gang. Þeir vilja endilega hafa mig áfram þannig að það bætast við einhverjir dagar í næstu viku og því verð ég líklega að vinna alveg fram að heimferðinni. Hér fyrir neðan má sjá eitt kynningarspjald fyrir akkúrat þennan vef.
Í gær var síðan bónenkæ eða árshátíðar fundur hjá TLUG. Allir hressir og þrátt fyrir að hafa ætlað að fara heim í fyrra lagi og hvílast eftir þessa annasömu viku þá var það mikið fjör að gamanið entist fram á morgun. Einhver ólæti voru þó í Guiness klumpnum sem var búinn að hreiðra um sig í maganum á mér því að ég fékk alveg dúndrandi hausverk og lagðist út af fram á kvöld. Eftir það var stílað á heimþrána með því að horfa á Sigur Rós myndina Heima. Rétt vika í þetta :)