Skrifað heim ...
Jæja, það var komin tími á það. Nú tók ég mig til og uppfærði heimasíðuna, enda get ég varla ímyndað mér betri notkun á fríinu mínu. Einhver hafði kvartað að hún væri of flókin, væntanlega er þetta einfaldara núna. Kannski ekki. Allaveganna þá hafði ég hugsað mér að birta hér í “heima.is” dálkinum mínum skrif á móðurmáli mínu um persónuleg málefni. Einnig má finna skrif á ensku í “geek-log.en” dálkinum um tölvutengd og önnur nördarleg málefni. Að lokum má skoða flickr strauminn minn og svo almenna mynda albúmið. Vonandi kann fólk að meta þessa nýbreytni þegar það villist hingað inn.

