Skrifað heim ...

Ég á til með að minnast á eina af nýjust Firefox viðbótunum sem ég hef tekið í notkun. Það er AdBlock viðbótin. Með því að hlaða henni niður og setja inn í Firefox þá má nota hana til að fjarlægja auglýsingar af ýmsum síðum. Til að mynda þá er alveg tilvalið að nota það til að hreinsa öll þessi blikkandi ljós og vesen af síðum Morgunblaðsins.

Það má gera svo:

  1. Sækið AdBlock með því að klikkar á hlekkinn hér fyrir ofan.
  2. Ef AdBlock var ekki sett inn sjálfkrafa þá má gera það með því að vista skránna á heimasvæðið og opna hana síðan með File->Open.
  3. Endurræsið Firefox (Windows notendur athugið að það ætti ekki að vera þörf á að endurræsa tölvuna).
  4. Farið í “Tools->Adblock Plus”.
  5. Veljið “Add Filter”.
  6. Sláið inn “http://*.mbl.is/augl/files/*/*.*”
  7. Farið á mbl.is og dáist að öllum tómu svæðunum.

Um að gera að njóta þessa áður en einhver verður kærður fyrir þjófnað á auglýsingatekjum.