Skrifað heim ...

Ég var að fara í gegnum eitthvað gamalt dót þegar ég rakst á bréf nokkuð. Síðast liðinn mars þegar ég fór í skíðaferðalag með félaga mínum, var áætlunin að leigja mér skíðafatnað þegar á staðinn væri komið. Mér að ókunnugu var gengið frá málum svo að kunningjar félaga míns mundu lána mér nauðsynlegan skífatnað. Þegar komið var á staðinn fann ég svo skíðafatnað í loftþéttum plastpoka með eftirfarandi bréfi, sem mér fannst svo yndislega einlægt að ég varð að setja það hér upp:

memo from Tanaka

En þar má lesa:

Til Hr. Billkil-san

Snjófatnaður minn er stór sem japanskur maður. Þannig, það hentar þér ánægjulega. (Ég keypti fatnaðar settið mitt notað. Þannig, ekki hafa áhyggjur af því skítugu, og njóttu þess að fara á skíði)

※ Úðaðu vatns-heldri dós fyrir þína notkun.

Frá Tanaka.

Vakti bréf þetta nokkra kátínu milli míns og félaga míns. Stuttu seinna hitti ég Tanaka og get sannarlega sagt að hann var mikið ljúfmenni og auðþekkjanlegur af sjálfsmyndinni. Ég á honum þakkir fyrir lánið og ég skemmti mér mjög vel þrátt fyrir að hafa orðið fyrir vægu aðkasti fyrir skrautlegt útlit.