Skrifað heim ...

Hitastigið farið að hrapa hérna. Tók loksins út hitarann fyrir rúmlega viku síðan og gékk frá viftunni. Þessi atburður, að taka út og ganga frá hitaranum og viftunni, gerist tvisvar á ári og merkir gjarnan þann tímapunkt þar sem veðrið fer úr því að vera mjög þægilegt yfir í annaðhvort of heitt eða of kalt.

Loksins búinn að ákveða heimferðar plönin! Flýg með Virgin Atlantic til Lundúna þann 14. og heim tveimur dögum seinna. Á von á að hitta góða kappa í Lundúnum og ef fleiri verða á staðnum eða vilja slást með í för þá endilega að hafa samband :)
Vonandi verður þetta gott stopp í þetta sinn. Ég hef ég næstum 4 vikur til að verja á klakanum þannig að maður ætti að lifa við rólegra skédjúl en oftast. Vonandi heldur tilhlökkunin á mér hita næstu vikurnar.

Lesið áfram fyrir heimferðaráætlunina.

Heimferðaráætlun:

  • Til London, 14. des, lendi 15:30.
  • Til Reykjavik 16. des, lendi 23:35
  • Frá Reykjavik 19. jan, 09:00