Skrifað heim ...

Ég hef verið ráðinn sem ráðgjafi hjá fyrirtæki nokkru hér í bæ næstu tvær vikurnar. Ég hafði farið í tvö starfsviðtöl hjá fyrirtækinu en ég á nokkra kunningja innan þess og þeir vildu endilega tala við mig. Fyrirtækið er nokkurskonar uppsprettufyrirtæki, það er að segja, tiltölulega nýtt fyrirtæki stofnað með áhættufjármagni. Markmið fyrirtækisins er að framleiða kennslu hugbúnað fyrir markaði í Asíu. Þeir eru mikið í því að safna að sér hæfileikum og voru því á höttunum á eftir fólki þrátt fyrir að hafa ekki mjög vel skilgreindar stöður í boði. Mér leist vel á fyrirtækið en átti erfitt með að vera mjög áhugasamur um einhverra óákveðna stöðu innan þess. Ég var farinn að spá í hvort að þeir vildu ekki bara ráða mig til skamms tíma svo ég gæti séð hvað þeir væru að gera og þeir betur áttað sig á mínum hæfileikum og það kom skemmtilega á óvart þegar þeir buðu mér akkúrat það að fyrra bragði. Þetta ætti að vera besta mál, enda hjálpar þetta að greiða upp í dýrar heimferðir ;)

Fyrirtækið heitir Cerego og nýjasta varan þeirra er kennsluvefurinn iKnow (hlekkur).