Skrifað heim ...

Það gerist ekki oft, en það snjóaði í nótt og aldrei þessu vant var nágrennið mitt hvítt á að líta. Eftir smá skemmtun á hverfiskránni síðast liðinn föstudag lagðist ég í leti helgi eins og hún gerist best. Gos, pizza og vidéó. Horfði á “The Science of Sleep” sem ég hafði keypt fyrir 500 kall á Heathrow og þrátt fyrir að vera spes mynd með ágætis karakter um dreng sem á erfitt með að gera greinarmun á draumi og veruleika þá var hún á heildina litið gífurlega leiðinleg. Mæli ekki með henni.

snjór í tokyo

Mikið er búið að vera gera í vikunni, vinnudagarnir nokkuð óvenjulegir frá 10.30 til að verða tíu að kvöldi flesta daga. Vefnum gengur vel og komin yfir 70K notendur með almennt mjög jákvæða umfjöllun. Er að læra helling af nýju dóti um Ruby forritunarmálið og Rails vef þróunar umhverfið, tali nú ekki um gagnagrunna og hvað þarf að gera til að fá SQL fyrirspurnir til að keyra vel. Nú þarf ég bara að fara plana helgarnar betur til að gera eitthvað skemmtileg. Dauðlangar á skíði en svo virðist sem allir séu of uppteknir til að stelast í burtu. Um næstu helgi er kynning á viðbrögðum við jarðskjálfta í boði Sendiráðsins í samvinnu við Íslendinga Félagið og er von á sérfræðingi frá Tokyo borg til að halda fyrirlestur. Líklegast kominn tími til að maður hugsi alvarleg um þennan möguleika.