Skrifað heim ...
Vorblómin eru byrjuð að blóma hérna þó að hitarinn minn sé enn í gangi flest öll kvöld. Nóg er að gera í vinnunni og birtust fréttir frá fyrirtækinu um að hundrað þúsund notendur hefðu verið skráðir á vefinn eftir aðeins rétt 5 mánuði.
- Fréttayfirlýsingin er hér á japönsku
- Önnur grein um fyrirtækið (Sést einhverstaðar í kollinn á mér þarna)
Næstu helgi flýg ég norður til Hokkaido í aðra skíðaferð ársins. Fór þá fyrstu í lok febrúar með Tókíó Gæjín félagskap nokkrum og var það bara nokkuð gott þar sem mér tókst að komast niður 1600 m fjallið nær óskaddaður. Smá mynd hérna í tilefni þess, en eins og rétt svo sjá má er ansi margt um manninn í hlíðum Nagano.

Í þetta sinn fer ég með Áströlskum vini mínum og konu hans og gistum við þar í heimahúsum fjölskyldunar. Ætti að vera gott fjör og ég hlakka mikið til. Annars er íbúðarleit hafinn og kominn tími til að flytja sig nær miðbænum og þá nýja vinnustaðnum. Spurning hvað þetta tekur langan tíma en áætlunin er að finna eitthvað með ágætis rými á skikkanlegu verði og það helst innan 10 Km frá Shibuya. Þetta hljómar hálf ómögulegt en hver veit… Já, og fékk mér PS3 til að spila Blu-Ray diska. Nokkrir svoleiðis á leiðinni en meira um það á ensku síðunni.

