Skrifað heim ...
Ég er að fatta að það er orðið talsvert síðan ég krotaði eitthvað hérna síðast. Góðir þrír mánuðir að minnsta kosti. Hvað hef ég nú haft fyrir stafni? Ég eyddi apríl aðallega við vinnu og í íbúðarleit. Hélt ég væri komin með eina góða íbúð, splunkuný og flott en hætti við á síðustu stundu. Fannst verðið alltof hátt og var ekki alveg 100% með hverfið. Síðan kom það í ljós að vinir mínir Jóhann og Eggert ætluðu að koma í heimsókn þannig að ég ákvað á endanum að fresta allri íbúðarleit þangað til í ágúst enda er þá meira framboð heldur en nú.
Í maí skrapp ég í fallhlífar svifflug (e. paragliding) með nokkrum vinnufélögum, afspyrnuvel tóks til og fór ég rúmlega 8 ferðir sem þykir í meira lagi þó að hver ferð sé frekar stutt enda vorum við algjörir byrjendur. Myndir frá því hér.

Nú kom Jóhann í lok maí og dvaldi hér í tvær vikur áður en við skruppum saman til Phuket eyjar í Tælandi. Sú ferð gekk mjög vel, veðrið var ágætt þrátt fyrir að þetta hafi verið yfir regntímann. Einu sinni lentu við í hellidembu og það á þessum mótórhjólum sem við höfðum leigt okkur. Það var áhugaverð reynsla að keyra um á 60 - 70 km hraða með stærðar regndropa hamrandi á bringunni. Að lokum var ég svo gegnsósa að það reyndist ekki þurr blettur á skrokknum. Í betra veðri var keyrt um alla eyjuna og skoðað. Hvert kvöld beið manni dýrindis máltíð með Tælensku karrí, humrum og risarækjum og það allt á innan við 2000 kr íslenskar á haus, og það með nokkrum bjórum. Einnig var skroppið til Phi Phi eyjar sem er á milli Phukets og meginlandsins. Farið var á báti og stoppað til að synda á gullfallegum ströndum, snorkela í sjónum, og stinga sér fram af bátnum… allt í allt þræl gaman.

Eftir að heima var komið hef ég verið að reyna að ná andanum eftir allan hamaganginn, vinnan tók náttúrulega við á fullu og nóg að gera. Eggert kemur síðan í heimsókn um næstu helgi og þá verður sko ekkert minna að gera. Bæti fljótlega við myndum frá Phuket (um leið og ég kemst í gegnum þær, ekkert lítil vinna að fara í gegnum þessar myndir) þannig að áhugasamir ættu að kíkja aftur fljótlega. Einnig bætast líklega nokkrar við flickr svæðið áður en ég set þær upp í albúminu.
Þangað til næst, endilega láta í sér heyra í pósti eða á tjattinu.

