Skrifað heim ...

Skrapp á útihátíð sem var haldinn á tjaldstæði nokkru í Gunma sýslu hérna í Japan. Fyrsta almennlega partýið í rúmlega mánuð, enda hef ég tekið því rólega eftir viðburðaríkt sumar. Líklega voru um 2000 manns á svæðinu, flestir í tjöldum en vinnufélagi rekur allt apparatið og gat ég því komið mér fyrir í kofa nokkrum, þó að það sjái á mér eftir að hafa sofið á gólfinu þar. Það er svona þegar maður sleppir dýnu og lætur bara ör-þunnan svefnpokann vera milli skrokks og viðargólfs. Tónlist var spiluð frá því fyrir miðnætti og fram yfir hádegi daginn eftir og var dansað og djammað undir tunglbjörtum himni. Fyrsta almennilega útilegan mín hérna í Japan og verð ég að segja að ágætlega tókst til. Fleiri myndir frá hátíðinni má finna í mynda albúminu.

Labyrinth Stage

Nú einnig er vert að minnast á að þar voru líka komnar upp myndir frá Phuket ferðinni og svo heimsókn minni til Nokogiri-yama.

Einnig hefur verið nóg að gera í vinnunni. Frá og með síðstu viku var opnað fyrir nýtt efni á vefnum okkar sem hjálpar ensku mælandi að læra japönsku og muna japanskan orðaforða. Ef einhver er forvitinn og vill leggja nokkur japönsk orð á minnið þá er um að gera að kíkja á japönsku-ensku kúrsanna hjá iKnow.co.jp. Fljótlega mun síðan bætast við kúrsar sem kenna japanska stafróið en þangað til má velja rómanska stafróið sem valkost í iKnow forritinu sem er keyrt upp frá síðu hvers kúrs fyrir sig. Hér fyrir neðan má glugga nokkur orð úr kúrs sem ég var að prufa.

Að lokum þá er það í fréttum að hef ég fjárfest í flugmiða heim um Jólin og vonast til að koma svo snemma sem 18. des og vera fram á nýja árið að venju. Þá er líklega um að gera að fara versla jólagjafir, það er alveg sama hvað ég byrja snemma á því, ég lendi alltaf í vandræðum með nokkrar sem eru geymdar fram á síðustu stundu.